90-Day Reset — rekstrarumbætur á 90 dögum
Eitt verkefni. Níutíu dagar. Verklag sem virkar áfram þegar okkar vinnu lýkur.
Þetta er eina þjónustuleiðin sem Thor OPS býður upp á. Hún byggist á því að flest rekstrarvandamál leysast ekki með því að starfsfólkið leggi meira á sig. Lausnin felst í að finna einn eða tvo staði í verkferlinu þar sem fyrirkomulagið sjálft stendur því fyrir þrifum.
Algengir hnökrar í rekstri
Viðvörunarmerki um rekstrarbresti birtast oft löngu áður en vandinn verður augljós. Við hjálpum þér að greina og leysa undirliggjandi vanda í skipulagi og verkferlum.
Boðleiðir sem ráða ekki við vöxt
Álagið á þær verður of mikið, ábyrgðarskiptingin óskýr og skipulagið styður ekki við frekari vöxt.
Samhengislaust verkflæði milli deilda
Þegar verkferlar tengjast illa þarf að færa verkefni milli aðila, tafir verða og upplýsingar skila sér ekki.
Sífellt flóknari rekstur
Verkferlum fjölgar hraðar en fyrirtækið ræður við að stýra þeim.
Ósamræmi í því hvernig reglum er fylgt
Mismunandi verklagsreglur og ósamræmi í framkvæmd auka rekstraráhættu.
Vaxandi tækniskuld
Úreltir verkferlar og bráðabirgðalausnir tefja starfsfólk og valda því að endurtaka þarf vinnu.
Ófullnægjandi yfirsýn yfir framkvæmd
Stjórnendur skortir upplýsingar í rauntíma um árangur, vandamál og stöðu rekstrarins.
Verkferlar sem standast ekki aukið álag
Það sem virkaði þegar umsvifin voru lítil bregst þegar reksturinn vex og verður flóknari.
Áfangi 1 — Greining
Vikur 1–3.
Við fylgjumst með störfum á vettvangi, hvort sem er á verkstæðinu, í vöruhúsinu eða í símtölum, og rekjum leið verkefnis frá fyrstu beiðni þar til því er lokið. Við leitum að muninum á lýsingu verkferilsins og því hvernig verkin eru í raun unnin. Þar leynist nær alltaf kostnaður.
Þú færð stutta, skriflega greiningu á þeim tveimur eða þremur þáttum verkferilsins sem bregðast, hvað hver þeirra kostar og hvað þarf til að bæta úr.
Að áfanganum loknum hefur þú
- Kort af raunverulegu verkflæði, ekki aðeins mynd af formlegu skipulagi
- Nákvæma greiningu á því hvar verkefnaskil, ákvarðanataka eða upplýsingamiðlun bregðast
- Skýrt og auðskilið mat á kostnaði vegna hvers vanda
Áfangi 2 — Endurhönnun
Vikur 4–9.
Við endurhönnum þá þætti sem greiningin leiddi í ljós í samstarfi við fólkið sem vinnur verkin. Það tekur virkan þátt í breytingunum. Verkferli sem starfsfólkið hefur ekki komið að því að móta er líklegt til að verða sniðgengið innan mánaðar, án þess að mikið beri á.
Þessi áfangi skilar breytingum sem virka í reynd, ekki glærusafni: nýju fyrirkomulagi verkefnaskila, skýrari ábyrgð og eftirliti sem greinir vandamál áður en viðskiptavinurinn verður þeirra var.
Að áfanganum loknum hefur þú
- Endurbætt verklag í notkun á öllum þeim stöðum þar sem vandamál greindust
- Skýra, skráða ábyrgð á hverju skrefi, sem þarf ekki að útskýra aftur í hverri viku
- Fyrstu niðurstöður um árangur við að draga úr þeim kostnaði sem greiningin leiddi í ljós
Áfangi 3 — Festing í sessi
Vikur 10–13.
Nýju verklagi er yfirleitt fylgt meðan athyglin beinist að því, en það getur látið undan þegar nýjabrumið fer af. Á þessum áfanga tryggjum við að svo verði ekki, með einföldu eftirliti sem greinir frávik snemma og skýrri ábyrgð hjá þínu teymi.
Við fylgjum innleiðingunni nægilega vel eftir til að lagfæra það sem bregst þegar reynir á verklagið í venjulegri vinnuviku. Þar kemur í ljós hvort breytingin virkar í raun.
Að áfanganum loknum hefur þú
- Verklag sem virkar án þess að ráðgjafi sé á staðnum
- Einfalda og fljótlega leið fyrir teymið til að ganga úr skugga um að verklagið virki áfram
- Skrifleg gögn við verklok, svo teymið geti viðhaldið árangrinum án aðstoðar Thor OPS
Fyrir hverja er þjónustan?
90-Day Reset er ætlað fyrirtækjum sem glíma við hnökra í rekstri, erfiðleika við framkvæmd eða aukið flækjustig vegna vaxtar. Þau þurfa skýrara skipulag og umbætur sem taka á rekstrinum í heild.
- Rekstrarteymi í vexti — teymi sem glíma við vaxtarverki, óskýra verkferla og álag á mannafla og önnur aðföng.
- Tækni- og þjónusturekstur — starfsemi með flóknu verkflæði og tíðum verkefnaskilum, þar sem tæknikerfi eru háð hvert öðru.
- Starfsemi með flóknu verkflæði — fyrirtæki sem stýra samtengdum verkferlum í mörgum verkfærum og kerfum og þvert á teymi.
- Starfsemi sem nær yfir margar deildir — fyrirtæki þar sem samhæfing, samskipti og ábyrgðarskipting láta undan þegar umsvif aukast.
Áður en 90-Day Reset hefst
Enginn rekstur er eins. Áður en 90-Day Reset hefst förum við stuttlega yfir þarfir fyrirtækisins til að staðfesta að þjónustan henti og afmarka nákvæmlega hvað verkefnið felur í sér.
- 1. Kynningarsamtal — við metum núverandi rekstur, greinum helstu undirliggjandi vandamál og metum hvort 90-Day Reset sé rétta leiðin.
- 2. Afmörkun verkefnis — við skilgreinum umfang, markmið og árangursmælikvarða út frá aðstæðum í þínum rekstri.
- 3. Verkefnisáætlun — við setjum fram 90 daga áætlun fyrir áfangana þrjá: greiningu, endurhönnun og festingu í sessi, með skýrum áfangamarkmiðum og afurðum.
Stöðugleiki í rekstri verður ekki til af sjálfu sér. Hann byggist á vönduðu skipulagi.